Hlaðnir verðlaunum á Goðamóti

Hlaðnir verðlaunum á Goðamóti
Chilemeistarnir sáttir með bikarinn.

Strákarnir í 6. fl KA stóðu sig mjög vel á Goðamóti um síðustu helgi. Alls tóku 10 lið þátt frá KA og var árangurinn glæsilegur.

Mótið var mjög sterkt en fimm félög komu að sunnan ásamt liðum af Norður- og Austurlandi. Leikið var í átta styrkleikum með 8-12 liðum í hverri keppni. 

Öll KA-liðin enduðu fyrir ofan miðju í sinni keppni sem verður að teljast flottur árangur. Þá fengu KA-lið gull í Chile-deildinni og enskudeildinni, silfur í brasilísku, ensku og hollensku og brons í argentínsku og frönskudeildinni.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is