Hæfileikamótun KSÍ á Norðurlandi

Það tóku tíu leikmenn 4. fl drengja og stúlku þátt í hæfileikamótun KSÍ sem fram fór á KA-velli þann 1. september.

Halldór Björnsson þjálfari U17 landsliðs karla og yfirmaður hæfileikamótunar KSÍ var með æfingarnar. Þau sem voru valin fyrir hönd KA voru Brynja Bjarnadóttir, Hildur Bjarnadóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir, Katrín Þórhallsdóttir, Freyr Jónsson, Hlynur Viðar Sveinsson, Ottó Björn Óðinsson, Þorsteinn Már Þorvaldsson, Arnór Ísak Haddsson og Ragnar Hólm Sigurbjörnsson.

Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa staðið sig mjög vel enda flottir krakkar sem verður gaman að fylgjast með á næstu árum hjá félaginu.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is