Hádegiserindi hjá þjálfurum

Hádegiserindi hjá þjálfurum
Þrír öflugir þjálfarar.

Undanfarið hafa Þorlákur Árnason, Túfa og Donni mætt á súpufundi fyrir knattspyrnuþjálfara félagsins.

Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari U17 karla kom í byrjun febrúar og var með erindi um muninn á kanttspyrnuþjálfun í Svíþjóð og Íslandi. Hann starfaði á sínum tíma sem yfirþjálfari Brommapojkarna sem er ein besta akademían í Svíþjóð.

Í mars hélt Túfa meistaraflokksþjálfari KA erindi um leikstíl meistaraflokks og hvernig hann setur upp árið.

Í apríl hélt Donni meistaraflokksþjálfari Þór/KA erindi um leikstíl meistaraflokks og hvernig hann setur upp æfingar.

Fundirnir hafa verið vel sóttir enda er þjálfarahópurinn metnaðarfullur að viða að sér fróðleik til að verða öflugari þjálfarar.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is