Grillað fyrir leik okkar manna við Val á morgun

Grillað fyrir leik okkar manna við Val á morgun
Þessar eru næstum jafn girnilegar og okkar verða!

Á morgun, miðvikudaginn 29. júlí, fyrir leik okkar manna við Val í Borgunarbikarnum ætlum við að grilla ofan í mannskapinn, hvetjum við alla foreldra til að mæta með krakkana sína og gæða sér á dýrindis pylsum frá Kjarnafæði fyrir leik. Grillað verður á Akureyrarvelli.

Ætlum við að fýra upp í grillunum um 5 leytið og byrjum að dæla út pylsum klukkan 5:15

Leikurinn hefst klukkan 18:00 og hvetjum við auðvitað alla til að mæta á völlinn og styðja okkar menn til sigurs.

Til að létta á miðasölunni fyrir leikinn ætlum við að bjóða fólki að kaupa bæði miða í KA heimilinu yfir daginn og á backpackers klukkan 16:00 þegar Schiötharar og aðrir stuðningsmenn KA hita upp fyrir leikinn.

Ef þið eigið leið um KA heimilið á morgun þá hvetjum við ykkur eindregið að kaupa inngöngumiðana þar.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is