Greifamótin verða að Stefnumótum!

Greifamótin verða að Stefnumótum!
Stefnumót 2014

Það mun verða breyting á nafni og styrktaraðila fyrir mót sem hafa verið haldin á vegum yngriflokkaráðs KA undanfarin ár. Greifamótin svokölluð verða núna STEFNUMÓT og er styrktaraðili mótsins Stefna hugbúnaðarhús sem er fyrirtæki á Akureyri sem hefur náð góðum árangri í hönnun og þróun á hugbúnaði og ber þar helst að nefna vefumsjónarkerfið Moya. Mótin eru haldin í Boganum sem hér segir.

Fyrsta Stefnumótið verður haldið á helgina 21. febrúar - 23. febrúar og er iðkenndur í 3.flokki karla sem etja kappi. 

Annað Stefnumótið verður svo haldið 7. mars - 9. mars og þá eru það iðkendur í 4.flokki karla sem takast á.

Síðasta mótið verður svo auglýst síðar.

Nánar verður hægt að fylgjast með dagskrá og úrslitum með því að smella hérna: STEFNUMÓT



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is