Flýtilyklar
Takk fyrir síðast
Flottur dagur sem við vorum með síðastliðinn föstudag þegar 215 iðkendur komu í KA-heimilið og fengu gjafabréf fyrir nýrri treyju. Eldri krakkarnir fengu að draga númer en þessi yngri fengu gjafabréf og geta valið sér sjálf númer. Dagurinn Heppnaðist í alla staði mjög vel og ekki annað að sjá en að iðkendur og foreldrar hafi verið ánægð með þetta nýja fyrirkomulag þó svo að eflaust hafi einhverjir verið súrir með að fá ekki sitt uppáhalds númer.
Að gefnu tilefni viljum við líka biðja fólk um að sýna starfsfólkinu í Toppmenn & sport þolinmæði því það getur tekur langann tíma að prenta númer og auglýsingar á allan þennan fjölda búninga. Reiknað er með því að það geti tekið alveg vikuna fyrir þau að prenta á búningana.
Fyrir þá sem eru búnir að borga en eiga eftir að fá gjafabréf þá er hægt að fara upp í KA-heimili á skrifstofutíma og hitt Siguróla. Hann bíður spenntur eftir því að hitta ykkur og hjálpa til við drátt á númerum :)
Við viljum líka þakka þeim sjálfboðaliðum sem hjálpuðu til við að gera þetta verkefni mögulegt.