Flýtilyklar
Goðamót í 5. kvenna
03.03.2014
Á Goðamótinu í 5. kvenna tóku 25 KA-stelpur þátt í þremur liðum síðustu helgi.
Hvert lið spilaði sjö leiki en fyrir utan að spila fótbolta fóru stelpurnar t.d. í Brynju þar sem KA-systurnar Júlíana Mist leikmaður 2. fl Þór/KA og Sara Mjöll leikmaður 3. fl KA græjuðu ís handa öllum.
Á laugardaginn var svokallaður landsleikur þar sem tvær stelpur úr hverju liði voru valdar. Fulltrúar KA í leiknum voru Lilja Björg Geirsdóttir og Birta Rós Blöndal og stóðu þær sig báðar mjög vel í leiknum.