Glæsilegt N1-mót

Glæsilegt N1-mót
Fjölmennasti 5. fl KA frá upphafi!

KA stóð fyrir fjölmennasta N1-móti frá upphafi og ekki skemmdi það fyrir að aldrei hafa verið fleiri KA-lið sem hafa tekið þátt.

Við vorum með níu lið úr 5. fl ásamt því að flottir strákar úr 4. fl voru gestalið í A-keppni. Öll liðin spiluðu sjö til níu leiki á fjórum dögum. Strákarnir tóku vel á því og voru flest liðin um miðja deild eftir marga hörku leiki. Strákarnir í KA 8 komust lengst en þeir fóru alla leið í 8-liða úrslit þar sem þeir biðu lægri hlut fyrir Fylki. 

Hérna er skemmtilegt myndband sem var sýnt á lokahófi mótsins.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is