Gjafabréf fyrir KA-treyjum

Gjafabréf fyrir KA-treyjum
KA treyjur

Kæru iðkendur og foreldrar!

Eins og kom fram hér á síðunni nýlega mun stutterma KA keppnistreyja fylgja æfingagjöldum nú í vor, en til að fá treyju þarf að skrá sig og fá afhent gjafabréf.

Fyrirkomulag:
1. Forráðamenn ganga frá skráningu og greiðslu iðkenda á netinu á vefslóðinni https://ka.felog.is/Default.aspx. (athugið að ekki er hægt að fá gjafabréf án þess að búið sé að ganga frá skráningu). 

2. Iðkendur koma upp í KA og fá afhent gjafabréf fyrir nýrri treyju, Þeir iðkendur sem eru fæddir árið 2005 eða fyrr draga númer. Treyjurnar er hægt að nálgast í Toppmenn & sport en þeir sjá einnig um að merkja númer og nöfn sé þess óskað. Við viljum biðja fólk um að sýna starfsfólki Topmenn & sport þolinmæði því það getur tekið tíma að fá treyjurnar afhentar þar sem iðkendafjöldi hjá okkur er mikill og talsverður tími fer í merkingar).

Númeraúthlutun:
Í 11 manna bolta er gert ráð fyrir að ekki séu fleiri en einn iðkandi í sama númeri og viljum við venja okkar krakka við það sem fyrst. Því fá iðkendur fæddir árið 2005 (eldra ár í 6.flokki) og upp úr að draga númer sem þeir munu síðan nota upp alla yngriflokka félagsins.

Þeir iðkendur sem fæddir eru á oddatölu 2005, 2003, 2001, 1999 draga eingöngu úr oddatölum.
Þeir iðkendur sem fæddir eru á sléttri tölu 2004, 2002, 2000 draga eingöngu úr sléttum tölum.

Fyrirkomulag:
1. Skráðir iðkendur (helst í fylgd með foreldrum/forráðamönnum) koma til okkar, einn í einu og draga þrjá miða með númerum. Þeir velja eitt af þessum þremur númerum og skila hinum tveimur miðunum. Við skráum númerið hjá okkur og á gjafabréfið. Toppmenn og sport sjá síðan um að merkja treyjuna með númeri á kostnað yngriflokkaráðs, ef foreldrar vilja bæta við nafni iðkanda þurfa þeir að greiða fyrir það sjálfir. 
     - Merking með nafni og litlu númeri að framan 1.500 kr .-
     - Hægt er að fá langerma treyju í staðinn fyrir stutterma og kostar það 1.000 kr .-

2. Iðkendur í 8. flokki, 7. flokki og á yngra ári í 6. flokki greiða æfingagjöld á netinu, koma í KA og fá afhent gjafabréf fyrir treyju sem þeir geta sótt í Toppmenn og sport. Foreldrar geta látið merkja treyjuna með nafni barns og hvaða númeri sem þeim dettur í hug en merkingin er á kostnað foreldra.

Gott að hafa í huga:
- Það þarf að vera búið að ganga frá skráningu til að geta dregið númer og fengið gjafabréf.
- Krakkarnir eru mjög mörg spennt yfir því hvaða númer þau draga og sumir verða eflaust fyrir vonbrigðum þegar þeir fá ekki „óska númerið“. Því er mikilvægt að þið foreldrar komið með þeim í þetta verkefni, sérstaklega krökkum í 5. og 6. flokki. 
- Iðkendur geta ekki skipt um númer innbyrðis, það númer sem þau draga verður það númer sem þau nota upp yngriflokka KA í öllum leikjum
- Markmenn fá gula treyju eins og allir aðrir. KA mun sjá um að skaffa markmannstreyjur í leiki. 
- Þeir sem komast ekki upp í KA heimili þann 1. maí geta komið á hefðbundnum opnunartímum á skrifstofu KA, fengið gjafabréf og dregið númer hjá starfsfólki á skrifstofunni.

Bestu kveðjur, yngriflokkaráð

 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is