Fyrsta útiæfing 8. fl stelpna

Fyrsta útiæfing 8. fl stelpna
Rakel og Harpa að stjórna teygjum.

Í dag fór fram fyrsta útiæfing hjá stelpunum í 8. fl en þær hafa verið inni í KA-heimilinu í vetur.

Það voru 17 stelpur sem mættu á æfingu hjá 8. fl á gervigrasinu. Stelpurnar hafa haft það náðugt í gamla judosalnum í KA-heimilinu í vetur en voru mjög ánægðar bæði að komast út og prófa að æfa á gervigrasi. Þær eru þó ekki alveg komnar út en fyrir hverja æfingu út maí verður gefið út hvort þær verða úti eða inni á heimasíðu flokksins.

8. flokkur stelpna er fyrir allar stelpur sem verða fimm og sex ára á árinu (f. 2008 og 2009) og tökum við alltaf vel á móti nýjum stelpum. Æfingar fara fram á mánudögum kl. 16:15-17:00 út maí. 

Í júní, júlí og ágúst munu þær æfa 16:15-17:00 mánudag, þriðjudag og fimmtudag á KA-svæðinu.

Þjálfarar flokksins eru Alli, Harpa og Rakel. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is