Frí þriðjudaginn 10. nóvember

Það verður frí þriðjudaginn 10. nóvember í yngriflokkum KA. Ástæðan er að stór hluti þjálfarahópsins er að fara í fræðsluferð til Danmerkur. Það verður þó styrktaræfing hjá 3. fl karla þennan dag.

Þeir Aðalbjörn Hannesson, Egill Daði Angantýsson, Pétur Kristjánsson, Siguróli Magni Sigurðsson, Skúli Bragi Magnússon, Slobodan Milisc, Steingrímur Örn Eiðsson og Sævar Pétursson fljúga í morgunflugi á föstudaginn út til Kaupmannahafnar. Á föstudaginn og laugardaginn skoða þeir æfingar hjá Brondby. Á laugardaginn og sunnudaginn fara þeir á leiki í dönsku úrvaldsdeildinni. Á mánudaginn fara þeir í heimsókn til FC Mitdsjælland og á þriðjudaginn heimsækja þeir AGF áður en þeir fljúga heim á miðvikudaginn. 

Eins og sjá má er þetta metnaðarfull dagskrá og koma þeir vonandi tvíefldir til leiks þegar þeir mæta til þjálfunar aftur fimmtudaginn 12. nóvember.

Æfingar á laugardaginn eru samkvæmt plani að mestu fyrir utan að 4. fl kvenna æfir kl 11:00 í Boganum.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is