Flýtilyklar
Flottur endir á sumrinu í 4. kv
Stelpurnar í 4. fl enduðu sumarið vel er þær unnu Þórsara 5-1 í A-riðli Íslandsmótsins.
Fyrir leikinn mátti búast við hörku leik enda liðin jöfn að stigum. Þórsarar voru ekki lengi að komast á blað með marki sem kom upp úr hornspyrnu. Okkar stúlkur náðu ekki að svara fyrir sig í fyrri hálfleik og leiddu Þórsarar 1-0 í hálfleik. Eitthvað sögðu Egill Ármann og Ásgeir Óla að viti við þær í hálfleik því þær komu mjög einbeittar, ákveðnar og vel spilandi í seinni hálfleikinn. KA-stelpurnar skoruðu alls fimm mörk í seinni hálfleik og unnu því sannfærandi 5-1 sigur. Það var gaman að sjá hversu góður spilkafli kom hjá KA-liðinu í seinni hálfleik þar sem þær spiluðu á milli sín með stuttum sendingum.
KA A-lið endaði því í 8. sæti í A-riðli í sumar líkt og B-liðið sem lauk keppni í síðustu viku með góðum 3-2 sigri á Breiðablik 2.