Fjölmennust á Goðamóti

Fjölmennust á Goðamóti
Silfurhafarnir í Brasilískudeildinni.

KA setti svip sinn á Goðamótið í 6. fl kvenna en alls tóku 9 lið þátt frá KA. Liðin voru skipuð stelpum úr 6. fl og eldra ári í 7. fl. Eins og gengur og gerist var árangurinn misjafn þegar horft er í sæti en það var KA2 sem náði bestum árangri en þær enduðu í 2. sæti í Brasilískudeildinni.

Stelpurnar voru til fyrirmyndar innan sem utan vallar og áttu virkilega skemmtilega helgi.

Næsta verkefni hjá þessum stelpum sem og öllum í 6.-8. fl er Stefnumót KA sem haldið er 30. apríl í Boganum.




Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is