Fjarðarálsmeistarar

Fjarðarálsmeistarar
Fjarðarálsmeistararnir í B-liðinu.

Það voru 25 strákar sem kepptu fyrir hönd KA í tveimur liðum á Fjarðarálsmótinu í 3. fl kk á Reyðafirði helgina 26.-27. apríl.

Bæði lið stóðu sig mjög vel bæði innan sem utan vallar. A-liðið var yfirburðar lið á mótinu og unnu alla fjóra leiki sína. B-liðið komst í úrslitaleikinn eftir að hafa unnið tvo leiki og tapað einum í riðlakeppninni. Í úrslitaleiknum gegn Fjarðabyggð lentu okkar menn undir en þeir létu það ekkert á sig fá og snéru taflinu sér í vil og unnu góðan 3-2 sigur. Bæði liðin unnu því sína keppni.

 Líkt og í öðrum ferðum yngri flokka KA í vetur var fariðin símalaus og gekk það mjög vel. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is