Duglegar stelpur á Goðamóti 6. fl kv

Duglegar stelpur á Goðamóti 6. fl kv
KA 1 stóð sig vel eins og öll KA-liðin um helgina.

Við vorum með fjögur lið í 6. fl. kvenna á Goðamótinu um helgina. Öll liðin stóðu sig vel en ber þar helst að nefna KA 1 sem endaði í 2. sæti eftir spennandi keppni.

KA 1 endaði í 2. sæti eftir að tapa 2-1 í hörkuleik en Valsstúlkur unnu mótið. Á sama tíma hafði Breiðablik 2 betur gegn Breiðablik 1 sem gerði það að verkum að KA 1, Breiðablik 1 og Breiðablik 2 voru jöfn að stigum en þar sem KA 1 fékk fæst mörk á sig af þessum liðum var 2. sætið staðreynd.

KA 2, KA 3 og KA 4 stóðu sig einnig mjög vel en þau fóru öll í efri styrkleika í sinni keppni eftir föstudaginn og fengu flotta jafningjaleiki laugardag og sunnudag.

Fyrir utan fótboltann þá var t.d. sungið, farið í Brynju og sund þannig að stelpurnar gleyma þessari helgi ekki í bráð. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is