Coerver Coaching í Boganum

Dagana 25.-27. okt verður knattspyrnunámskeið hjá Coerver Coaching í Boganum á Akureyri. Námskeiðið er fyrir alla krakka í 3.-7. flokki drengja og stúlkna.

Coerver Coaching er æfinga og kennsluáætlun í knattspyrnu sem hentar öllum aldurshópum, en sérstaklega aldrinum 6-16 ára á öllum getustigum.

Aðalmarkmið Coerver Coaching er að þjálfa færni, sjálfstraust og sköpunargleði hjá leikmönnum. Gera leikinn skemmtilegan í æfingum og leik. Kenna góðan íþróttaanda og virðingu fyrir allt og öllu. Virða sigur en ekki meir en gott hugarfar og frammistöðu. Bjóða upp á öruggt og lærdómsríkt umhverfi sem mætir best þjálfunarmarkmiðunum. Þjálfarar á námskeiðinu koma frá Coerver Coaching.

Yfirþjálfari og framkvæmdastjóri Coerver Coaching á Íslandi er Heiðar Birnir Torleifsson.  

Dagskrá - Æfingar
Iðkendur (2004-2008) kl. 09.00-12.00
Iðkendur (1999-2003) kl. 13.00-16.00
verð kr. 14.500 + 10% systkina afsláttur *
Iðkendur fá Coerver Coaching treyju frá Adidas
Skráning fer fram hér http://coerver.is/shop/Knattspyrnuskoli og einnig á heidar.torleifsson@coerver.is.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is