C-lið 3.fl kk í úrslitaleik

C-lið 3.fl kk í úrslitaleik
Agnar (annar frá vinstri) skoraði 2. mark KA í dag

Áfram um árangur yngriflokka. Nú rétt í þessu var 3.fl karla C-lið að tryggja sér sæti í Úrslitaleik íslandsmótsins eftir að hafa unnið KR í undanúrslitaleik 4-0. Í úrslitum mætir KA annað hvort Breiðablik 1 eða Breiðablik 2 sem eru að spila sinn leik núna.

Ágúst Már Steinþórsson skoraði fyrsta markið, Agnar Ingi Bjarkason koma KA í 2-0 með marki úr víti. KR ingar mistu síðan mann af velli og það var Þorsteinn Már Þorvaldsson sem skoraði 3-0 fyrir KA. Viktor Andri Sigurðsson kláraði síðan dæmið með fjórðamarki KA og niðurstaðan 4-0.

3.flokkur karla er því komið með B og C liðið sitt í úrslitaleik en A-liðið tapaði sínum leik í undanúrslitum í vítaspyrnukeppni á mót Breiðablik sem endaði síðan með að verða Íslandsmeistari um helgina.
Frábær árangur hjá strákunum og þjálfurum



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is