Búningaæfing hjá 4. kvenna á Öskudaginn

Það er búið að vera skemmtilegt hjá stelpunum í 4. kvenna undanfarið en Meistaravikan endaði á mánudaginn. Í Meistarvikunni þá kepptu stelpurnar í hinum ýmsu keppnum á æfingum og endaði vikan á kökukeppni. Stelpurnar bökuðu þá nokkrar saman kökur sem að þjálfarnir dæmdu hver væri best. Að lokum fengu allar að smakka hver hjá öðrum sem þær kunnu vel að meta.

Á Öskudaginn þá mættu þær allar í búningum á æfingu á gervigrasinu við KA-heimilið. Greinilega mikið stuð hjá stelpunum í 4. kvenna! 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is