Búið að opna fyrir skráningu á vetrarnámskeið knattspyrnudeildar

Nú geta foreldrar tekið gleði sína á nýjan leik og skráð börnin til leiks í knattspyrnunámskeið vetrarins.

Búið er að opna fyrir skráningar á námskeiðin í gegnum NÓRA félagakerfið og eru tvær leiðir í boði: Vetrargjald (1.9.2016-31.5.2017) eða árgjald (1.9.2016-31.8.207) en það er um 10% ódýrara að greiða árgjald í staðin fyrir vetrargjald og sumargjald í sitthvoru lagi.
Einnig verður í boði fyrir 7.-5. flokk að velja námskeið sem heitir æfingagjöld EITT SKIPTI Í VIKU en það er eingöngu fyrir þá sem æfa bara einu sinni í viku

Nánari upplýsingar má finna með að smella hér og þar má einnig sjá æfingatöflu vetrarins sem tekur formlega gildi þann 6. september næstkomandi



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is