Brons á Goðamóti

Brons á Goðamóti
Bronshafar í dönskudeildinni.

Stelpurnar stóðu sig vel á Goðamóti í 5. fl kvenna um helgina en sterk félög af sunnan mættu og úr varð sterkt og skemmtilegt mót.

Tvö KA-lið enduðu í 3. sæti og fengu því í bronsverðlaun sem stelpurnar kunnu vel að meta. Hin þrjú liðin voru öll fyrir miðju í sinni keppni og var því árangurinn mjög ásættanlegur. 

Framundan er skemmtilegt sumar í 5. fl en þær byrja sumarið að fara til Vestmannaeyja og í júlí er förinni haldið á Símamót í Kópavogi. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is