Birgir til Finnlands með U17

Birgir Balvinsson er í U17 ára landsliðshóp Íslands sem tekur þátt í undakeppni EM í Finnlandi.

Liðið mun leika gegn heimamönnum miðvikudaginn 27. september, Færeyjum laugardaginn 30. september og Rússum þriðjudaginn 3. október. Tvö efstu liðin komast áfram í milliriðil EM og því til mikils að vinna.

Birgir spilar sem vinstri bakvörður og var í sumar fyrirliði 3. flokks karla. Hann átti gott sumar með 3. fl en þeir enduðu í 3. sæti A-deildar og urðu bikarmeistarar Norður- og Austurlands. 

Við óskum Birgi til hamingju með valið og góðs gengis í Finnlandi.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is