Biggi Bald og Karen María áfram í milliriðil EM

Birgir Baldvinsson kom ekkert við sögu með U17 ára liði Íslands en eins og þeir sem þekkja Bigga þá hefur hann eflaust átt sinn þátt í að liðið endaði með 7 stig eftir sigra gegn Rússlandi og Færeyjum og jafntefli gegn Finnlandi. Biggi hefur nefnilega þann góða eiginleika að gera liðsfélaga sína öflugari með að peppa þá upp og halda þeim á tánum.

Karen María kom inná í 2-0 sigri gegn Aserbaídsjan og í öðrum leik spilaði hún allan leikinn í 5-0 sigri á Svartfjallalandi. Karen og hennar liðsfélagar eru því komnar áfram þegar þær eiga eftir að spila einn leik. Síðasti leikurinn sem fram á sunnudaginn verður krefjandi en þá mæta okkar dömur Spáni sem er eitt af sterkastu liðum heims.

Við óskum þeim báðum og liðsfélögum þeirra til hamingju með þennan árangur.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is