Átta krakkar í Hæfileikamótun KSÍ

Átta krakkar í Hæfileikamótun KSÍ
Sex drengir voru valdir frá KA

Tvær stelpur frá KA tóku þátt í Hæfleikamótun KSÍ í Kórnum 19.-20. september og um helgina hafa sex drengir verið boðaðir suður.

Til gamans má geta að KA er eitt af fjórum liðum sem eiga sex drengi sem voru valdir en ekkert félag átti fleiri stráka.

Mótið fer fram undir stjórn Halldórs Björnssonar og hér að neðan má sjá nafnalista þeirra KA leikmanna sem boðaðir eru til leiks. Undanfarið hefur Halldór Björnsson ferðast um landið með Hæfileikamótun KSÍ og N1 og er þetta mót framhald af þeirri vinnu.  

Um er að ræða leikmenn sem eru í 4.flokki, 13 til 14 ára, og hafa þeir mætt á æfingar og fengið annan fróðleik í gegnum Hæfileikamótun KSÍ og N1.

Leikmenn KA sem voru valdir:
Brynja Bjarnadóttir
Karen María Sigurgeirsdóttir
Arnór Ísak Haddsson
Birgir Baldvinsson
Freyr Jónsson
Hlynur Viðar Sveinsson
Ottó Björn Óðinsson
Þorsteinn Már Þorvaldsson



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is