Flýtilyklar
Arsenalskólinn gjafabréf
Iðkendur KA sem eru skráðir í Arsenalskólann geta nálgast staðfestingarspjald um að þau séu skráð í skólann í afgreiðslu KA-heimilsins.
Fótboltaskóli Arsenal fer fram KA svæðinu í júní 2015. Námskeiðið hefst mánudaginn 15. júní og lýkur föstudaginn 19. júní.
Skipulag skólans verður með svipuðu formi og s.l. sumar. Æfingar hefjast klukkan 10 og standa yfir til kl. 15 en um hádegisbil er tekið um klukkustundarlangt matar- og hvíldarhlé. Krakkarnir fá heitan mat í hádeginu alla dagana auk léttrar hressingar í lok dags.
Verð í þennan frábæra skóla er einungis 25.000 kr.
Skólinn er ætlaður fyrir krakka í 3., 4., 5., og 6. flokki, þ.e. fædd 1999 til 2006 og fara æfingarnar fram á svæði Knattspyrnufélags Akureyrar.
Það er gaman að geta þess að Alex sem var með stelpurnar í fyrra kemur aftur sem og Romaine og Rupen sem hafa báðir komið oft áður.