Arsenalskólinn - aðstoð

Arsenalskólinn - aðstoð
Arsenalskólinn

Kæru KA foreldrar.

Eins og undanfarin ár fer Arsenalskólinn af stað á næstu dögum. Hann hefst mánudaginn 16.júní og er út vikuna eða til 20.júní. Ennþá er hægt að skrá sig í skólann með því því að smella á þessa slóð: http://www.ka-sport.is/fotbolti/arsenalskolinn

Skólinn heppnaðist í alla staði frábærlega í fyrra og vonumst við til þess að það sama verði upp á teningnum í ár. En það er mikil vinna og utanumhald þegar um eða yfir 200 krakkar koma saman til að æfa fótbolta. Því óskum við í yngriflokkaráði eftir ykkar aðstoð við að gefa krökkunum að borða, halda KA svæðinu og heimilinu áfram til fyrirmyndar og önnur tilfallandi verkefni. Skólinn stendur yfir þessa daga frá kl 10:00 á morgnana til kl 15:00. Mest er þörfin á aðstoð yfir matartímann og er öll aðstoð þegin, þó það væri ekki nema hluta úr degi, allt hjálpar.

Þeir sem hafa möguleika og geta séð sér fært um að aðstoða okkur í þessum verkefnum eru vinsamlegast beðin um að senda tölvupóst á bergvin@stefna.is með eftirfarandi upplýsingum:

  • Nafn
  • símanúmer
  • Hvaða dag(a) viðkomandi getur aðstoðað
Einnig er hægt að hringja í síma 662-0083 (Beggi) og fá nánari upplýsingar
Við yrðum alveg svakalega þakklát,
Yngriflokkaráð


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is