Aron Dagur stóð sig vel

Aron Dagur Birnuson stóð sig vel með U17 þegar liðið fékk fjögur stig í þremur leikjum í undankeppni EM.

Aron Dagur hélt hreinu í fyrsta leik þegar strákarnir unnu Kasakstan 5-0. Drengirnir mættu því með fullt sjálfstraust og voru óheppnir að sigra ekki Grikki eftir að hafa komist yfir en 1-1 var niðurstaðan. Það var því ljóst að jafntefli myndi duga gegn Dönum til að komast áfram en tvö mörk Dana í seinni hálfleik gegn engu var niðurstaðn. Strákarnir enduðu því í þriðja sæti og þurfa að treysta á úrslit í öðrum riðlum til að komast áfram.

Aron Dagur þótti standa sig mjög vel en hann spilaði alla þrjá leikina frá upphafi til enda.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is