Aron Dagur og Daníel til Færeyja

Aron Dagur Birnuson og Daníel Hafsteinsson fara með U17 ára liði Íslands til Færeyja þar sem þeir taka þátt í undirbúningsmóti UEFA.

Drengirnir fljúga út til Færeyja föstudaginn 17. apríl og leika þar gegn Wales, Norður-Írlandi og Færeyjum áður en þeir koma aftur til landsins þriðjudaginn 21. apríl.

Við óskum þeim til hamingju með valið og góðs gengis í bláu treyjunni.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is