Aron Dagur og Daníel sigruðu Wales

Aron Dagur og Daníel sigruðu Wales
Daníel nr 14 eftir sigur á Wales.

Aron Dagur Birnuson og Daníel Hafsteinsson spiluðu vináttulandsleiki með U19 ára liði Íslands Wales á dögunum. Leikirnir voru hluti af undirbúningi liðsins fyrir undakeppni EM þar sem að Ísland er í riðli með Færeyjum, Búlagaríu og Englandi.

Daníel spilaði um 30 mínútur í fyrri leik liðanna sem endaði 4-0. Seinni leikur liðanna endaði 1-0 en þar spilaði Aron Dagur allan leikinn og Daníel um 20 mínútur.

Þeir félagar hafa báðir átt fast sæti í 18-manna leikmannahóp KA í Pepsideildinni í sumar ásamt því að spila með 2. fl félagsins sem er í 2. sæti B-deildar. 





Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is