Aron Dagur fékk brons með U17

Aron Dagur fékk brons með U17
Aron er mikill vítabani.

Aron Dagur og liðsfélagar hans enduðu í 3. sæti á Opna Norðurlandamótinu. Aron Dagur var maður leiksins í bronsleiknum við Dani þar sem hann hélt hreinu.

Aron Dagur var í markinu í fyrsta leik mótsins þar sem Íslands þar sem Svíþjóð hafði betur 3-0. Samkvæmt Halldóri landsliðsþjálfara átti Aron þó góðan leik en það dugði ekki í það skipti.

Ísland vann í kjölfarið tvo góða sigra á Bandaríkjunum 2-0 og Færeyjum 4-0 þar sem Aron sat á bekknum allan tíman. 

Aron Dagur lék í marki Íslands í dag þegar liðið vann Danmörk eftir vítaspyrnukeppni. Aron hélt marki Íslands hreinu í venjulegum leiktíma og varði tvær spyrnur í sigri Íslands vítaspyrnukeppni. Til að kóróna flott mót hjá okkar manni var hann valinn maður leiksins hjá Íslandi í bronsleiknum.

Óskum Aroni og liðsfélögum hans til hamingju með frábæran árangur.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is