Anna Rakel og Saga Líf til Finnlands

Anna Rakel og Saga Líf til Finnlands
Saga Líf í Belfast í vor.

Anna Rakel og Saga Líf hafa verið valdar til að taka þátt í vináttulandsleikjum gegn Finnlandi með U17 ára liði Íslands. Leikirnir fara fram í Eerikkila í Finnlandi þriðjudaginn 18. nóvember og fimmtudaginn 20. nóvember. Leikirnir eru hluti af undirbúningi liðsins fyrir lokakeppni Evrópumótsins sem fer fram hér á landi næsta sumar. 

Þær hafa báðar komið við sögu í öllum sjö leikjum liðsins í ár en liðið tók þátt í æfingamóti í Norður-Írlandi í apríl og Norðurlandamótinu í Svíþjóð í júní. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is