Anna Rakel og Frosti markahæst

Anna Rakel og Frosti markahæst
Frosti var markahæstur í 4. fl A-riðli í sumar.

Góðir markaskorarar eru mjög mikilvægir og er það gleðiefni að Anna Rakel og Frosti Brynjólfs voru markahæst í A-deild. Anna Rakel skoraði 14 mörk í 13 leikjum í 3. fl og Frosti skoraði 15 mörk í 10 leikjum í 4. fl.

Í hverju liði er æskilegt að vera með góða blöndu af mismunandi leikmönnum. Oftar en ekki fá markaskorarnir mestu athyglina en það verður að hafa það í huga að þeir myndu skora lítið án góðra liðsfélaga. Má einnig nefna að góðir markmenn og varnarsinnaðir leikmenn eru oft lykillinn af góðum árangri. Í yngri flokkum KA erum við heppnin að eiga marga efnilega leikmenn sem hafa mismunandi styrkleika. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is