Allar æfingar á KA-velli

Allar æfingar fara nú fram á KA-velli hér eftir og erum við því hætt í Boganum.

Íslandsmótið byrjaði um helgina hjá yngriflokkum félagsins með suðurferðum hjá 3. fl karla og kvenna. Strákarnir gerðu mjög góða ferð er þeir unnu fjóra leiki og gerðu tvö jafntefli gegn Keflavík (ABC), ÍA (AB) og Stjörnunni (C) en tvö fyrrnefndu enduðu í efstu tveimur sætunum í Faxaflóamótinu. Stelpurnar töpuðu gegn A-liði Breiðabliks og gerðu jafntefli gegn B-liði þeirra grænklæddu fyrri daginn en sigurðu HK/Víking 5-0 í A-liði en biðu lægri hlut gegn B-liði Fjölni/Aftureldingu/Fram.

Flokkarnir fara núna hægt og rólega að hefja æfingar aftur eftir vorfrí. Starfið í 5. flokk hefst þriðjudaginn 19. maí og starfið í 6.-8. fl hefst þriðjudaginn 26. maí.

Æfingatímar geta breyst lítilega þegar allir flokkar eru byrjaðir að æfa þar sem að það eru einnig Íslandsmótsleikir á virkum dögum og biðjum við því alla að fylgjast vel með á heimasíðu allra flokka hvort það séu einhverjar breytingar á æfingatíma. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is