Alex, Biggi og Gulli á hæfileikamót KSÍ og N1

Alex, Biggi og Gulli á hæfileikamót KSÍ og N1
Birgir Valur að æfa sig aukalega á KA-velli.

Alex Máni, Birgir Valur og Gunnlaugur Rafn fara um helgina á hæfileikamót KSÍ og N1.

Hæfileikamót KSÍ og N1 drengja fer fram í Kórnum í Kópavogi dagana 7. – 8. október. Mótið fer fram undir stjórn Dean Martin.

Undanfarið hefur Dean Martin ferðast um landið með Hæfileikamótun KSÍ og N1 og er þetta mót framhald af þeirri vinnu. Um er að ræða leikmenn sem eru í 4. flokki og hafa þeir mætt á æfingar og fengið annan fróðleik í gegnum Hæfileikamótun KSÍ og N1. 

Óskum drengjunum til hamingju með valið og góðs gengis.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is