Æfingar í vetrafríinu

Núna á næstu dögum eru skólar bæjarins í vetrarfríi. Það verða þó æfingar hjá okkur samkvæmt æfingaplani.

Á fimmtudaginn gengur rútan eins og við höfum áður auglýst. Foreldrar eru beðnir að senda tölvupóst á alli@ka.is eða siguroli@ka.is ef krakkarnir eru í fríi þennan dag í 6. og 7. fl.

Á laugardaginn þá eru þjálfarar meðvitaðir að það eru margir í fríum en verður skemmtilegar æfingar fyrir þá sem mæta. 

Annars fer starfið mjög vel á starf og góð mæting er í öllum flokkum. Flokkarnir fara núna hægt og rólega að spila fyrstu æfingaleiki tímabilsins.

Laugardaginn 21. nóvember verður Stefnumót í Boganum fyrir 6.-8. flokk þar sem hver iðkandi mætir í 2-3 klst og spilar nokkra leiki. Í kjölfarið fá þau verðlaunapening og pizzu.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is