Æfingar af stað

Æfingar af stað
Áfram KA

Ágæta KA-foreldri, 

Nú fara æfingar að hefjast skv. sumartöflu og fer skráning iðkenda og greiðsla æfingagjalda fram á vefsíðunni https://ka.felog.is/ Allar nánari upplýsingar um æfingatíma o.fl. er að finna á heimasíðu yngriflokkanna með því að smella hérna.

Samherji styrkir yngriflokkana og kemur styrkurinn til lækkunar æfingagjalda. Iðkendur sumarsins fá 6.500 kr sem búið er að taka tillit til. Þeir iðkendur sem greiddu æfingagjöld í vetur fá 6.500 kr lækkun því til viðbótar, þá lækkun þarf að sækja sérstaklega um með því að senda tölvupóst á yngriflokkarad@gmail.com Þær upplýsingar sem þurfa að koma fram eru nafn og flokkur iðkanda, ásamt bankaupplýsingum sem leggja á inná.

Yngriflokkaráð



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is