5. kv Fjarðarálsmeistarar

Stelpurnar í 5. fl kvenna gerðu góða ferð austur á Reyðafjörð um síðustu helgi.

Við vorum með tvö jöfn lið sem stóðu sig bæði frábærlega. Liðin voru í tveimur efstu sætunum en ásamt KA tók Fjarðabyggð, Höttur, Einherji og Sindri þátt. 

Fyrir utan að spila fótbolta þá var Eurovisionkvöld hjá stelpunum og var því góð stemmning í hópnum. Ásgeir Óla þjálfari flokksins sagði að ferðin hefði heppnast mjög vel enda flottar stelpur í flokknum. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is