34 lið á Strandarmóti

KA setti stóran svip á Strandarmótið sem fram fór á Árskógsvelli helgina 11. og 12. júlí.

Á laugardeginum tóku 32 drengir í 8. fl og 59 drengir í 6. fl þátt. 

Á sunnudaginn var komið af krökkunum í 7. fl þar sem 52 stelpur mættu til leiks ásamt 50 drengjum. 

Heildarfjöldi iðkenda var því 193 sem skráðu sig til leiks sem er einkar glæsilegt.

Ekki voru skráð úrslit á þessu móti en var það orð manna að KA-liðin hefðu verið til fyrirmyndar líkt og áður. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is