3.kvenna með 2 sigra síðustu helgi

3.kvenna með 2 sigra síðustu helgi
Eftir leik við RKV

3.fl kvenna A-lið spilaði tvo leiki á höfuðborgarsvæðinu síðust helgi á móti FH og RKV sem sameinað lið Reynis, Keflavík og Víðis

Stelpurnar spiluðu á laugardeginum á móti FH í hörku leik. FH komst yfir með marki úr vítaspyrnu en KA stelpur jöfnuðu leikinn fyrir hálfleik þegar Rakel Sjöfn skoraði. Margrét Árnadóttir bætti síðan við öðru marki í seinni háfleik með glæsilegur skoti fyrir utan teig og lokatölur 1-2 fyrir KA.

Seinni leikurinn var á móti RKV í Keflavík. Mikill baráttu leikur þar sem okkar stelpur spiluðu agaðann og góðann varnarleik með góðu skyndisóknum. Úr tveimur þeirra skorum við 2 mörk þar sem Margrét Árnadóttir var á ferð. Í seinni hálfleik spiluðu stelpurnar mjög vel og náðu að bæta við tveimur mörkum til viðbótar, það gerðu Salka Hermannsdóttir og Auður Ingvarsdóttir eftir gott samspil.

Stelpurnar hafa spila 4 leiki, unni 3 og tapað einum.

næsti leikur er á sunnudag á móti FH hérna heima á Gervigrasinu á KA vellinum



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is