3. kv Stefnumótsmeistarar

Það var líf og fjör í Boganum um helgina á Stefnumóti KA í 3. og 4. fl kvenna. Alls tóku 15 lið þátt frá 8 félögum. 

KA United í 3. fl gerði sér lítið fyrir og vann alla sína leiki örugglega með markatöluna 31-1. KA City stóðu sig einnig mjög vel og hrepptu þriðja sætið.

Lið 4. flokks átti góða helgi en þurfti að sætta sig við tap í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum og léku því um bronsið þar sem þær höfðu betur gegn Hetti. Liðið tapaði ekki leik í venjulegum leiktíma um helgina og voru með markatöluna 19-2.

Úrslit einstakra leikja og sætaröðun.

Við óskum KA-stelpunum með glæsilegan árangur og þökkum öllum sem komu að mótinu fyrir þeirra framlag. 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is