3. fl kvenna Bikarmeistarar!

3. fl kvenna Bikarmeistarar!
Bikarmeistarar 2015!

Stelpurnar í 3. fl urðu Bikarmeistarar Norður- og Austurlands eftir 1-0 sigri á Tindastól/Hvöt.

Stelpurnar voru allan tíma betri og var ótrúlegt að jafnt var í hálfleik en stelpurnar höfðu þá oft verið mjög nálægt því að skora en boltinn fór frekar í tréverkið en í netið.

Draumabyrjun seinni hálfleiks þegar Rakel Sjöfn Stefánsóttir var tekin niður af markverði Tindastóls inn í vítateig. Margrét Árnadóttir skoraði af öryggi og kom okkar stelpum yfir. 

Þrátt fyrir að vera með boltann meira og minna endaði leikurinn 1-0 og bikarinn því okkar.

Bikarmeistarahópurinn:
Arna Kristinsdóttir, Auður Ingvarsdóttir, Berglind Baldursdóttir, Berglind Birta Kristinsdóttir, Dagný Þóra Óskarsdóttir, Diljá Dögg Trampe, Eygló Erna Kristjánsdóttir, Kristín Brynjarsdóttir, Magðalena Ólafsdóttir, Margrét Árnadóttir, Ólöf Rún Pétursdóttir, Rakel Sjöfn Stefándóttir, Rósa Dís Stefánsdóttir, Saga Líf Sigurðardóttir, Salka Hermannsdóttir, Una Kara Jónsdóttir, Véný Skúladóttir, Þórgunnur Þorsteinsdóttir og Æsa Skúladóttir (fyrirliði).
Þjálfarar: Egill Ármann Kristinsson og Björk Nóadóttir.

Óskum þessum stelpum og þjálfurum til hamingju með bikarinn!



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is