2. flokkur kvenna Íslandsmeistari!

Stelpurnar í 2. fl þurftu að sigra HK/Víking í síðasta leik sínum í A-deild Íslandsmótsins til að standa uppi sem sigurvegarar. Þær gerðu það og gott betur þar sem þær unnu mjög sannfærandi 5-1. 

Liðið spilaði 12 leiki í deildinni og fékk 28 stig eða tveimur fleiri en Fylkir sem endaði í öðru sæti deildarinnar. Karen María Sigurgeirsdóttir er markahæsti leikmaður A-deildar með 17 mörk en hún er enn gjaldgeng í 3. fl sem gerir þá staðreynd enn merkilegri. 

Tímabilið er þó ekki búið hjá þessum öfluga flokk þar sem þær leika gegn Stjörnunni í bikarúrslitaleik sunnudaginn 24. september á Þórsvelli. 

Óskum stelpunum og þjálfurum til hamingju með þennan árangur og góðs gengis í bikarúrslitunum!



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is