Flýtilyklar
2. flokkur kvenna Bikarmeistari!
24.09.2017
Stelpurnar í 2. fl Þór/KA/Hömrunum urðu í dag bikarmeistarar eftir sigur á Stjörnunni í úrslitaleik þar sem Margrét Árnadóttir skoraði eina mark leiksins á 32. mínútu.
Þar með lauk frábæru sumri hjá 2. flokk Þór/KA/Hömrunum en þær eru einnig Íslandsmeistarar eftir að hafa unnið A-deild Íslandsmótsins.
Það er því ljóst að efniviðurinn er mikill á Akureyri en ásamt því að vera öflugasta lið landsins í 2. fl þá hafa margar stelpur á 2. og 3. fl aldri komið við sögu í meistaraflokk Þór/KA í Pepsideildinni eða í Hömrunum í 1. deild.
Við óskum stelpunum og þjálfurum þeirra til hamingju með þetta frábæra sumar.