Flýtilyklar
“Ef þú þráir eitthvað nógu heitt að þá finnurðu leiðina, – annars finnurðu bara afsökunina“
Mánudaginn 28.október ætlar Vilborg Arna Gissurardóttir “pólfari” að heimsækja okkur KA fólk og verður hún með fyrirlestur um markmiðasetningu fyrir iðkendur í 3. og 4. flokki. Fyrirlesturinn fer fram í Lundarskóla og er þetta samvinnuverkefni með handboltadeild og blakdeild ásamt góðri aðstoð frá aðalstjórn KA
Ástríða Vilborgar er náttúra, útivist og áskoranir og hefur hún mikla köllun til þess að fylgja draumum sínum eftir. Mottó Vilborgar er: “Ef þú þráir eitthvað nógu heitt að þá finnurðu leiðina, – annars finnurðu bara afsökunina“. Gildi Vilborgar eru:
- JÁKVÆÐNI
- ÁRÆÐNI
- HUGREKKI
sem svo sannarlega eru gildi sem ættu að heilla alla iðkendur í öllum íþróttagreinum.
Vilborg hefur haldið fjölda fyrirlestra fyrir félagsamtök og fleiri hópa um markmiðasetningu, úthald, eftirfylgni og persónuleg gildi með mjög góðum árangri.
Nánar má lesa um Vilborgu með því að fara heimasíðu hennar vilborg.is
Yngriflokkaráð