Innleiðing Sportabler

Nýtt forrit/app sem við tökum í notkun til að halda utan um dagskrá og samskipti flokksins. Sportabler, sem er íslenskt vef- og snjallsímaforrti sem einfaldar alla viðburðastjórnun, samskipti og utanumhald íþróttastarfsins. 

Leikmenn/foreldrar þetta þurfið þið að gera:
1.Skrá í Hóp hér https://www.sportabler.com/optin 

2. Kóði flokksins er: C284JB

3. Fylla inn skráningaupplýsingar:  Velja "Ég er leikmaður" / "Ég er foreldri" eftir því sem við á - bæði leikmenn og aðstandendur geta skráð sig. 

4. Staðfesta netfang í tölvupósti sem þið fáið frá Sportabler: Smella á "hér" þá opnast nýr gluggi (Muna eftir að athuga ruslpóst/spam folder)

5. Búa til lykilorð eða skrá sig inn með facebook (FB gengur einungis ef netfang við skráningu er það sama hjá FB). 

6. Allt klárt ! Skrá sig inn og þá ætti "Mín Dagskrá" að taka á móti ykkur. 

(7). Ná í appið - ef þið eruð ekki búin að því  (Appstore eða Google play store)

Ef þið lendið í vandræðum má hafa samband við þjónustuver Sportabler í bleiku spjallblöðrunni neðst hægra megin á www.sportabler.com

Myndband (Nánari útskýringar) um ferlið: http://help.sportabler.com/utskyringar-og-myndbond-um-kerfid/nyskraning-i-kerfid

Um Sportabler:  Að Sportabler stendur fólk úr íslensku íþróttalífi. Sportabler hlaut styrk frá Tækniþróunarsjóði Íslands, Hugbúnaður er þróaður í samvinnu við Íþróttafélög og þjálfara á Íslandi.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is