Jólabingó - bakstur

Komið þið öll sæl og blessuð,

Þann 20. nóvember n.k. ætlar Yngriflokkaráð að halda jólabingó sem er aðallega hugsað til að fjármagna rútuferðirnar, en jafnframt er markmiðið að gera eitthvað skemmtilegt saman og njóta þess að tilheyra KA.

Jólabingó er gömul hefð sem var endurvakin fyrir ári og heppnaðist afar vel þá. Okkur langar að biðja ykkur foreldra í ykkar flokkum að sjá um bakstur. Viljum við skipta því þannig aðstúlknaflokkar koma með eitthvað sætt s.s. rjómakökur, súkkulaðikökur, smákökur o.þ.h og drengjaflokkar komi með eitthvað ósætt s.s. kleinur, smurbrauð, brauð, ostakökur o.þ.h..

Okkur datt í hug að hafa skipulagið þannig að hvert foreldraráð sendir sínum foreldrum tölvupóst, eða nálgist með öðrum hætti s.s. facebook, og leggi fram þessa beiðni. Safnar síðan saman hver ætlar að koma með og hvað, og sendir það á yngriflokkarad@gmail.com Þannig getum við séð þetta nokkurn veginn, hvort eitthvað skorti og svoleiðis. Skilafrestur er 16. nóv þ.e. miðvikudaginn næsta.

Svo má fylgja með að mæta á með veitingarnar í Naustaskóla sunnudaginn 20. nóvember klukka 12.30

Einnig vantar okkur einhverja foreldra til að starfa á bingóinu í eldhúsi, afgreiðslu o.þ.h. ca. 10-14 manns væri frábært. Megið hafa það með í póstinum og biðja viðkomandi um að senda póst á yngriflokkarad@gmail.com hafi hann/hún áhuga á því að leggja hönd á plóg.

Smá upplýsingar um bingóið - það hefst kl 14:00 20. nóv í Naustaskóla. Við höfum verið mjög dugleg að safna vinningum og má t.d. nefna hótelgistingu, matargjafir og -körfur og margt fleira. Því stefnir þetta í frábært bingó.

Með fyrirfram þökkum fyrir frábær viðbrögð
Yngriflokkaráð


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is