Framundan...LESA VEL

Hæ.

Næsta þriðjudag (10 júní) byrja Míló og Tufa með séræfingar á morgnana fyrir 5. fl kvk. og 5 fl kk. klukkan 8:00 - 9:00 allt á KA - velli eins og allt héðan í frá. Það kostar ekkert auka. Mikið verður lagt upp úr tækni á þeim æfingum og skora ég á allar að mæta.

***Takið eftir, þetta eru AUKAÆFINGAR með Míló og Tufa, fyrir allar þær sem vilja. 

Það verða líka æfingar á okkar tíma klukkan 14:30 sömu daga.

Við gefum frí á morgun föstudag 6. júní,  vegna leiks í vikunni og æfingar sem var í dag.  Á mánudaginn næsta, annan í Hvítasunnu er einnig frí. 

Næsta æfing hjá okkur er því á þriðjudaginn 10. júni klukkan 14:30. (og 8:00 - 9:00 með Tufa og Míló fyrir þær sem vilja) 

Spáð er æðislegu veðri næstu daga, skora á allar að fara út að leika sér með bolta eða gera eitthvað annað. Æfa sig að halda á lofti jafnvel og slá met!

MUNIÐ EFTIR SÓLARVÖRNINNI og vatninu!!!... og góða skapinu!!:)

bekve,

Á og G 



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is