Æfingar hefjast aftur 15. sept

Æfingar hjá 5. fl stelpum fæddum 2004-2005 hefjast þriðjudaginn 15. september.

Æfingar verða fyrst um sinn á KA-velli meðan veður leyfir. 

Æfingar fara fram í september kl. 17:00-18:00 þriðjudaga, 17:00-18:00 fimmtudaga og 12:00-13:00 á laugardögum. 

Þegar við færum okkur í Bogann þá færast fimmtudagsæfingarnar til kl. 16:00 (nánar síðar).

Það verður frí laugardaginn 19. september vegna leiks KA og Þórs í 1. deild karla sem fram fer á Þórsvelli.

Þjálfarar í vetur verða Egill Ármann og Sandra María. Til gamans má geta að Sandra María var valin í A-landsliðið á dögunum sem spilar seinna í mánuðinum gegn Slóvakíu og Hvíta-Rússlandi.

Hlökkum til að sjá sem flesta á æfingar í vetur og eru nýjir iðkendur alltaf velkomnir að koma og prófa.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is