Vaktir á N1-mótinu

Morgunmatur KA heimili
Morgunmatur í Brekkuskóla
Hádegismatur í KA heimilinu
Kvöldmatur í KA heimilinu

Leiðbeiningar varðandi matarvaktir á N1 móti KA

Umsjón á matarvöktum er í höndum:

  • Ragnheiðar sími: 863-2884  -hádegis og kvöldmatur í KA heimilinu.
  • Örnu Ívars  sími: 660-0017 –morgunmatur í KA heimilinu.
  • Höllu sími:  661-3684 –morgunmatur í Brekkuskóla.

Þær sjá um að setja fólk í verk.

  1. Það að vera á matarvakt er eins og að vera þjónn á veitingastað, ávallt þarf að sýna viðskiptavininum virðingu og vera með endalausa þjónustulund.
  2. Ekki má yfirgefa vaktina nema með leyfi verkstjóra.
  3. Vakt líkur ekki fyrr en öllum verkum er lokið og verkstjóri hefur gefið til kynna um að svo sé.
  4. Það er tvennt sem getur klikkað á svona móti annað er veður og hitt er matur. Við getum ekkert gert í veðrinu en maturinn er alfarið í okkar höndum að hann sé góður og skipulagið í kringum hann sé fumlaust.

Klósettvaktir á N1

Leiðbeiningar varðandi klósettvaktir á N1 móti KA

Gestir á N1 móti gista á þremur stöðum í ár þ.e. Brekkuskóla, Lundarskóla og í Íþróttahöllinni. Það er í höndum foreldra 5.flokks karla að salernisaðstaða á þessum stöðum sé í toppstandi alla helgina!

Brekku- og Lundarskóli: Húsverðir vísa foreldrum á ræstukompur þar sem ræstivagna og hreinsiefni er að finna. 

  • Brekkuskóli - Jón Berg sími: 696-7045
  • Lundarskóli - Jonni: 781-2289

Þau verk sem þarf að vinna í Brekku- og Lundarskóla eru:

  1. Tæma rusla á öllum klósettum hússins.
  2. Þvo spegla, vaska og klósett.
  3. Skúra gólf á klósettum.

Íþróttahöllin: Ræstivagn, ryksuga og hreinsiefni eru framan við klósett á neðri hæð við inngang í salinn. 

  • Íþróttahöllin - Páll: 864-6144

Þau verk sem þarf að vinna eru:

  1. Tæma rusla á klósettum niðri og í gistirými uppi.
  2. Þvo spegla, vaska og klósett niðri.
  3. Skúra gólf á klósettum niðri.
  4. Ryksuga og skúra gólf í forstofu hússins.

 Foreldraráð.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is