Uppfærð lið á Strandarmóti - Vantar liðstjóra

Hér koma uppfærð lið á Strandarmótinu og ósk eftir liðstjórum. Starf liðstjóra á þessu móti er ekki flókið - heldur aðeins að taka við greiðslu frá öllum leikmönnum þess liðs sem liðstjórinn er og koma á yfirliðstjórann sem gerir upp við mótstjórn. 

Mótið er á sunnudaginn á Árskógsandi

Þátttökugjald er 2500kr á keppanda og greiðist til liðstjóra hvers liðs fyrir sig. Liðstjórinn safnar saman þátttökugjöldum fyrir alla keppendur í sínu liði og þegar allt er komið kemur hann peningnum á yfirliðstjórann (sem verður tilkynntur við hátíðlega athöfn í upphafi móts) sem sér um að gera upp við Dalvíkinga inn í mótsstjórn.

ATH ÞEIR SEM VILJA VERA LIÐSTJÓRAR MEGA KOMMENTA HÉR EÐA GEFA SIG FRAM VIÐ SIGURÓLA.

Aðeins er einn liðstjóri kominn og er það Einvarður Jóhannsson sem er með KA1

Mæting fyrir alla keppendur KA kl 09:30 en nánast öll lið hefja leik kl. 10:00 eða 15 mínútum síðar.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is