Stefnumót - Frábær stemming

Við þjálfararnir viljum þakka fyrir frábæran laugardag síðust helgi. Strákarnir stóðu sig mjög vel, voru duglegir og virtust allanvega skemmta sér mjög vel.

Framundan hjá okkur eru æfingar til og með 12.des.

Laugardaginn 12. des ætlum við að hafa foreldrafótbolta, það koma jólasveinar og strákarnir fá smá glaðning að lokinni æfingu.

Það er gott fyrir ykkur foreldrana að fá að vita af þessum foreldrafótbolta í tíma þannig að þið getið farið að æfa ykkur þannig við getum sloppið með lágmarks meiðsli.



Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | fotbolti@ka.is